Wednesday, January 21, 2009

Blaðberi once again

Það er með ólíkindum hvað heilinn minn er vitlaust hannaður. Þegar ég er orðin yfirmig þreytt og skríð undir góðu sængina mína og hnuðla mig upp í köggul, algjörlega ready fyrir friðsælan svefn, þá fara ótrúlegustu hugsanir og pælingar að streyma. Eins og einhver hafi skrúfað frá krana þarna inni. Ég reyni að sussa á þær og banka í hausinn, biðjandi hann um að gjöra svo vel að hafa sig hægan, því sumir séu að reyna að sofa. En nei-nei... ég gæti allt eins verið að tala kínversku við hann! Og ekki batnar það þegar ég á að vakna eftir, tjah... eina og hálfa klukkustund, eins og tíminn er staddur um þessar mundir, til þess að dreifa morgunblaði inn um lúgur sofandi mannabarna. Blaðberi once again... ég er nú hrædd um það fólk-s. Skokkandi í hálkunni... augun mín verða í kross þegar að því kemur.
SHARE:
© dagrenning | All rights reserved.
Blogger Template Created by pipdig