Ég var að hugsa í dag. Og ég áttaði mig á smávegis sannleika. Við erum alltaf að láta okkur dreyma. Dreyma um framtíðina, eitthvað sem okkur langar að upplifa... og í kjölfarið erum við alltaf að bíða eftir að draumar okkar vakni til lífs. Samt gerum við svo lítið til þess að vekja þá. Af hverju ekki að kítla þá oggulítið? Eða skvetta vatni framan í þá? Það ætti að vekja þá... get my point?