Wednesday, June 22, 2011

Vetrarfuglar og hlæjandi sólin

Það er skrítinn heimur sem sést í gegnum linsuna á ljósmyndavél. Hann er einhvern veginn töfrandi. Stundum sér augað ekki sköpunarverkið fyrr en linsan rammar það inn. Þessir undursmáu vetrarfuglar tístu sig inn að hjartarótum einn kaldan dag í vetur. Ég man að ég velti því fyrir mér hvað þeir hefðu að segja við hvern annan. Í kapphlaupi að næsta brauðmola byrjaði svo að rigna frostrósum. Þvílíkt fjör.

Á sólardögum ætti að vera lögbundið frí með launum í kaupæti. Sólin hló á himnum og dreifði geislum sínum meðal mannfólksins - á meðan sat ég inni við skrifborð og horfði löngunaraugum á athæfið. Ég reyndi að laumast út um gluggann - hann er stór - en það tókst ekki. Sólin hló að mér og dillaði sér.

Ef mér tekst ekki að blogga á morgun þá tekst mér það á sunnudaginn. En ekki fyrr. Ég er að fara að ná mér í innblástur úti í sveit. Þrír og hálfur dagur, umvafin í náttúrufegurð og ferskt fjallaloft. Yndisleikinn er skrifaður yfir það allt.
SHARE:
© dagrenning | All rights reserved.
Blogger Template Created by pipdig