Wednesday, January 25, 2012

Orð á frost-stangli

Heimurinn breyttist í ævintýri í dag.

Ég datt líka ofan í snjóinn og týndist næstum því.

Fékk mér óvart kók.

Hugsaði mikið - og reyndi að fylgja einu snjókorni með augunum.

Fór í koddaslag.

Sat í sófanum og fann hvað það er ótrúlega kósí að hlusta á vindinn blása fisléttum frostrósum aftur til himins - eða svona hér um bil.

Það er tilfinning í sálinni sem hreiðraði þar um sig í morgun.

Það er eitthvað við snjóinn...
SHARE:
© dagrenning | All rights reserved.
Blogger Template Created by pipdig