Sunday, November 30, 2008

Jazzing my way through

Það er með trega og tárum sem ég flyt mig um set. Það var engin undankomuleið. Glöggir lesendur hafa eflaust áttað sig á hvers vegna ég vel einmitt daginn í dag til þess að stússast í flutningum. Einfalt. Prófatörnin er við það að hefjast og því tel ég lífsnauðsynlegt að hafa þennan vígvöll orðaflaums og hugsanaflæðis innan seilingar.

Dagurinn í dag hefur einkennst af ritgerðarsmíð. Eitt orð yfir það: Jakk. Það er nánast himneskt að hreiðra um sig hérna, með kaffibolla og kaldar táslur, og gefa textasmíðinni lausan tauminn, laus við lög og reglur. Næstu tvær vikurnar eða svo verða púl. Þær verða streð. Tár munu falla. Þreytan mun berjast fyrir yfirbugun stúdenta. Frelsið verður sífellt innan seilingar. En ég mun ekki bugast. Ég horfi til fjallanna. Smelli mér í mislitu sokkana... I'll be jazzing my way through.
SHARE:
© dagrenning | All rights reserved.
Blogger Template Created by pipdig