Thursday, November 17, 2011

Svolítið "fullorðins"...

Það er kítl í sálinni minni. Það minnir mig á fuglatíst. Ofurlítið og agnarsmátt.

Það er svo margt nýtt að gerast í lífinu mínu. Það er hvíslað "fullorðins" úr öllum hornum. Ég ætla að njóta hvers kafla.

Ég fékk lánað heilt kíló af brúðkaupsblöðum. Nú er það konfekt fyrir augun á hverju kvöldi - jibbí! Skipulagið komið á fullt og pennar í öllum regnbogans litum hafa verið dregnir upp á yfirborðið. Listagerð í hæstu hæðum.

... :)
SHARE:
© dagrenning | All rights reserved.
Blogger Template Created by pipdig